- Um meðferðina
- Jónína Benediksdóttir
- Ásdís Ragna Einarsdóttir
- Undirbúningur meðferðarinnar
- Hvað þarf að taka mér sér
- Umsagnir
Um meðferðina
Undirbúningur meðferðarinnar
A)
Við tökum blóðþrýsting og blóðsykur hjá ykkur við komuna og við lok meðferðar, ásamt því að við fylgjumst vel með blóðþrýstingi allan tímann.
Þeir sem þegar eru undir lækniseftirliti vegna sjúkdóma, vinsamlegast takið með ykkur niðurstöður úr síðustu blóðprufu sem tekin var.
B)
Einnig er nauðsynlegt, viku fyrir meðferð, að taka ákveðnar fæðutegundir út og breyta lífsstílnum aðeins.
Hér að neðan er listi yfir það sem gott er að gera áður en meðferð hefst:
- Skrifa niður öll lyf sem verið er að taka og taka þau með.
Hætta að drekka örvandi drykki líkt og kaffi, gosdrykki og áfengi.
Minnka eða sleppa alveg öllum sykri, öllu brauði, kjöti og kartöflum.
Borða sem mest af grænmeti og eitthvað af ávöxtum.
Drekka minnst 1 1/2 lítra af vatni á dag.
Minnka reykingar eða hætta alveg.
Reyna að sofa án svefnlyfja, minnka svefnlyfin.
Ekki borða mat úr áldósum, mat með langt geymsluþol (dósir, pakkar) eða reyktan mat.
Sleppa öllum mat sem á stendur diet. Í honum eru toxísk efni.
Fara í gufu og sund eins oft og þú treystir þér til.
Fara í létta göngutúra daglega.
Ekki stunda lyftingar eða hraða leikfimi.
Taka Omega 369.
Hugsa jákvætt um sjálfan sig og brosa! :-D